veigan bloggar
13.12.2008 11:06:58 / veigan

Jólin nálgast svooooo hratt!!!!

Góðan daginn krúttin mín:p:p:p:p
Allir hressir & kátir í Galtalindinni þrátt fyrir kreppu.  Við Kalli höldum sem betur fer ennþá okkar vinnum þótt það hafi dregið ansi mikið saman hjá okkur báðum tekjurnar........

Snúllurnar okkar eru eldsprækar og mjög uppteknar af jólasveininum:!::!::!:    Sú yngri vaknaði til að mynda fyrir 7 í morgun foreldrunum ekki til mikillar gleði:s:s:s

Við erum bara þakklát fyrir að eiga hvort annað, tvær heilbrigðar og yndislegar dætur, frábæra vini og fjölskyldu hvað getur maður beðið um meira:lol::lol::lol:     Peningar eru ekki allt þótt þeir telji ansi mikið og nú verður maður bara að slaka bogann heldur betur niður sem maður var búin að spenna allt allt of hátt........    Jólin verða jafn yndisleg eða ekki bara betri þótt gjafirnar verði ekki eins dýrar og stórar og áður........

Eigið nú gleðilega aðventu og jólahátíð krúttin mín og munið að hamingjan felst ekki í veraldlegum gæðum og dýrum jólagjöfum.........
Verið dugleg að knúsa, hrósa og hvetja hvert annað:p:p:p

knúsi knús

Veigan síkáta:p:p:p


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.10.2008 19:03:57 / veigan

Veigan að fara á djammið......................

Góða kvöldið krúttin mín:p:p:p
Héðan er allt gott að frétta af okkur í Galtalindinni8)8)8)8)  Snúllurnar eitur hressar, komnar í dekur hjá afa & ömmu í Borgó:lol::lol:
Guðmunda Marta skotta litla verður 3 ára næsta miðvikudag, stefnum við á veislu á laugardaginn eftir rúma viku......     Svaka stuð þá:):)   Hún er auðvitað eldspræk þessi elska, unir sér vel í leikskólanum.   Elín Helena er alltaf hress í Lindaskóla,  ótrúlega dugleg að lesa og læra þessi elska:haha::haha:   Er svo í fimleikum hjá Gerplu 2x í viku.
Við hjónakornin í banastuði, bæði að fara að djamma í kvöld, ég með bangsastelpunum og Kalli með Marel:!::!::!:    Ætlum svo að skella okkur í Borgó á morgun og gista eina nótt, aðeins að kíkja í sveitina góðu:lol::lol:

Hafið það nú gott krúttin mín & verið góð hvert við annað, knúsist & kelið:p:p:p

VEIGAN SÍKÁTA


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2008 19:19:40 / veigan

Strákar, strákar, strákar, strákar:-)

Hæ hó hæ hó:p:p:p
2 strákar fæddir, heilbrigðir & flottir8)8)8)
Nanna & Ómar eignuðust lítinn dreng 30 sept, 12 merkur og 52 cm.  Svaka flottur drengur sem ég er búin að kíkja á.....
Maggi & Tóta eignuðust svo strák í gær 1 okt.  12 merkur og 50 cm minnir mig:lol::lol: Á eftir að fara og kíkja á hann:):):)
Svo átti guðsonur minn hann Elvar Daði afmæli á þriðjudaginn, orðinn 7 ára prakkarinn;););)
Svo það er eintómt strákafans í kringum okkur....
Er svo nokkuð viss um að Helena sé með lítinn strák í sinni bumbu.....  Hlakka til að fá lítinn frænda í heiminn 25 febrúar hehehe:p:p:p
Annars allt gott að frétta úr Galtalindinni, allir hressir og kátir og lífið gengur sinn vanagang:!::!:
Erum aðeins farin að finna fyrir kreppunni eins og aðrir............
Annars bara knúsi knús úr Galtó8)8)8)
VEIGAN


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 18:25:03 / veigan

Rólegheit í Galtó:-)

Allir hressir & kátir hérna.....
Ekkert nýtt að frétta af okkur........
Elín Helena á fullu í Lindaskóla & Guðmunda Marta á Víðivöllum:p:p:p
Veigan alltaf að leikskólakennarast á Víðivöllum alltaf sama stuðið þar8)8)8)
Kalli í bana í Marel:d:d:d
Bíð eftir salsakvöldi með mágkonum mínum er þessi helgi að hringja bjöllum?????
Mútta kemur á eftir og gistir í nótt, verð eitthvað að dúllast með henni á morgun:lol::lol::lol::lol:
Annars bara góða helgi krúttin mín & hafið það nú gott:p:p:p
Knúsi knús
VEIGAN


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2008 10:47:03 / veigan

Óvissuferð í dag:-)

Hæ hó fólk:d:d  Bara að láta vita að ég er á lífi:!::!:
Allt gott að frétta af mér & mínum, stelpurnar eldsprækar og una sér vel í leik- og grunnskóla8)8)  við gamla settið bara hress:):)

Óvissuferð á eftir með Víðivöllum og þynka á morgun hehe:whut::whut:

66 dagar í Tenerife...........   Og Nanna vinkona bráðum að fara að eiga, er sett 18 okt....  Hlakka mikið til að verða "frænka" aftur.
Hafið það nú gott & munið að knúsast nú aðeins:þ:þ:þ:þ
VEIGAN Í BANASTUÐI...........


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2008 17:40:31 / veigan

Karlinn í Eyjum um helgina..........

Góðan daginn góðir hálsar:þ:þ

Jæja þá er bara enn & aftur komin helgi....  Við mæðgur erum bara einar heima þar sem karlinn á heimilinu skellti sér til Eyja á golfmót með Marel:s:s  Örugglega bara gaman þar:lol::lol:

Annars er örugglega bara róleg helgi framundan, Elín Helena fer á fimleikaæfingu á morgun og við Guðmunda Marta fylgjumst auðvitað með.  Erum svo að spá í að skella okkur í sund á eftir.  Annað ekki ákveðið en jafnvel bíóferð á grísina þrjá og stefnan er líka sett á að heimsækja Gumma & Gerðu og síðast en ekki síst litla Gunnar Þór krúttið þeirra en hann er að verða mánaðar gamall og við ekki en búin að sjá hann, gengur auðvitað ekki:^):^)

Í vikunni er svo starfsmannafundur og Kennósaumó hjá mér.  Er svo að byrja að synda aðeins, er búin að fara nokkrum sinnum og stefnan er sett á að reyna að synda 1000 m dugar ekkert minna- vondandi drukkna ég bara ekki....
Góða helgi krúttin mín & hafið það nú gott:þ:þ:þ

    VEIGAN SÍKÁTA8)8)8)8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.08.2008 21:43:21 / veigan

ÁFRAM ÍSLAND............

    Halló skralló gott fólk:þ:þ:þ
Nenni ekki að blogga núna, allir hressir & kátir enda ekki annað hægt eftir frábæran árangur hjá STRÁKUNUM OKKAR8)8)8)8)
Nú er bara að vakna hress & kátur í fyrramálið og horfa á strákana taka gullið já eða silfrið skiptir ekki öllu, meiriháttar hvað þeir eru búnir að standa sig vel þessar elskur:lol::lol::lol:
Unglingurinn á heimilinu byrjaður í Lindaskóla og örverpið unir sér vel á Kanínudeild, gamla settið heldur áfram í sínum vinnum, engar breytingar hjá okkur!!!
Kalli núna úti í Noregi að vinna, kemur aftur á þriðjudaginn, sakna hans mússí mús:cry::cry:
Nanna & co buðu okkur mæðgum í kvöldmat, ástarþakkir fyrir okkur krúttin okkar:d:d:d
Bara rólegur dagur framundan á morgun, kannski kíkja einn hring í IKEA, vantar rúm fyrir unglinginn... Fórum í smá búðarrúnt í gær og keyptum úlpu, flíspeysu, 2 peysur & pils á hana, þarf nú að dressa sig upp fyrir Lindaskóla:o:o:o

En hafið það nú gott krúttin mín og verið dugleg að hvetja strákana okkar í fyrramálið:þ:þ:þ
KNÚSI KNÚS VEIGAN SEM ER GRASEKKJA....


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 16:36:07 / veigan

Unglingurinn minn orðinn 6 ára:-)

Sælt veri fólkið og til lukku með helgina:þ::þ
Núna er litli/stóri erfinginn minn bara orðin 6 ára þessi elska8)8)  Hélt stelpu pizzupartý á sjálfan afmælisdaginn og þá var mikið stuð og mikið gaman.  Ætlar svo að halda smá fjölskyldu/vina afmæli laugardaginn 16 ágúst og þá verður örugglega enn meiri stuð:lol::lol::lol:
Veigan bara byrjuð að vinna og ómæ god hvað maður er eitthvað þreyttur eftir daginn hehe greinilega búin að gleyma hvað það er mikið stuð að vera leikskólakennari:):):)
Það var ótrúlega gaman á Bakkanum og frábært veður allan tíman, vorum ótrúlega heppin með það:d:d  Skelltum okkur fyrir jökul, fórum á Búðir, Arnarstapa, Hellnum, Hellisand, Rif & Ólafsvík einn  daginn og í Stykkishólm þann næsta:haha::haha:  Gistum 3 nætur og skemmtum okkur mjög vel.  Komum svo við á Þóristöðum í Svínadal þar sem tengdó, Kolbrún mágkona & fjölsk og Guðmunda mín voru ásamt fullt af öðru frændfólki, það varð úr að við gistum þar eina nótt.....   Við hjónin í fellihýsinu hjá tengdó og stelpurnar hjá Fríðu Rún & Viktori Karli.  Þar var auðvitað mikið grín og mikið gaman og aðeins of mikið af hvítvíni & rauðum ópal fyrir minn smekk en yndislegt alveg:þ:þ:þ
KÆRAR ÞAKKIR FYRIR SAMVERUNA ALLIR SAMAN, KNÚSI KNÚS:lol::lol::lol:

Svo var það bara vinna þessa vikuna:-)  Kalli var í fríi með Elínu Helenu en við Guðmunda Marta fórum í leikskólann.  Pínu erfitt að vakna og svona en annars bara mjög fínt og gott að allt sé að komast í fasta rútínu:d:d:d

Hafið það nú gott krúttin mín og þið megið nú alveg kvitta sko...........

VEIGAN


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 12:37:14 / veigan

Hvað á að gera um versló???

Góðan daginn góðir hálsar8)8)8)
Ekkert smá yndislegt veður svona í sumarfríinu:d Skelltum okkur á smá ættarmót í Hraunborgum um helgina og þar var auðvitað mikið stuð og mikið grín:lol::lol:  Drukknar þvagprufur og ýmislegt fleira segi ekki meira hehe.............
Guðmunda mágkona átti afmæli í gær og bauð í þessa líka svakalega veislu, nammi namm.  Ástarþakkir fyrir okkur elsku Guðmunda mín og enn og aftur til lukku með árin 25:þ:þ:þ
Lulla mín ætlar að kíkja í heimsókn á eftir, hlakka mikið til að sjá hana enda hef ég ekki hitt hana síðan í brúðkaupinu mínu:):)
Erum að fara að Laxárbakka á morgun með systkinum mínum og börnum þeirra, mútta og pabbi ætla svo að kíkja á okkur.  Verðum allavega fram á föstudag, kannski lengur fer bara eftir veðri og stemmningu8)8)
En hvert ætlið þið að skella ykkur um versló gott fólk???   Hvað er inn og hvað er out í dag??

KNÚSI KNÚS KRÚTTIN MÍN OG HAFIÐ ÞAÐ NÚ GOTT, GANGIÐ HÆGT UM GLEÐINNAR DYR OG Í GUÐSBÆNUM AKIÐ VARLEGA:haha::haha:

VEIGAN


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 12:59:26 / veigan

Veðrið, já blessaða veðrið!!!!!!!!

Hæ hó hæ hó hæ hó:lol::lol:
Allt gott að frétta úr Galtalindinni, vorum í yndislegu veðri og félagsskap í 2 nætur í Hraunborgum og 1 nótt í Þorlákshöfn í síðustu viku:þ:þ  Vorum með Magga, Tótu & Helgu í Hraunborgum en tengdó, Kolbrúnu, Viktori & Guðmundu í Þorlákshöfn8)8)
Maggi & Tóta buðu svo okkur ásamt nokkrum öðrum vinum í grill og fínerí á þriðjudaginn, svaka flott hjá þeim skötuhjúunum.  Hittum Finnboga & Kristínu með Jón Þór litla, Steina & Fífi, Gumma & Gerðu ásamt húsráðendum. Svaka gaman að hitta alla & frábær matur.  Ástarþakkir fyrir okkur:þ:þ
Skelltum okkur svo skotrúnt í Borgó í gær, við mæðgur fórum í sund með múttu og Kalli skellti sér í golf:o:o  Enduðum svo í læri og fínerí hjá múttu og pabba.
Erum svo að fara aftur í Hraunborgir á morgun á hálfgert ættarmót með fjölskyldu tengdapabba.  Það verður vonandi stuð en verst að veðurspáin er ekkert spes...........
Svo er það Laxárbakki í næstu viku og kannski um versló fer bara eftir veðri og vindum....
Knúsi knús og hafið það nú gott krúttin mín8)8)
VEIGAN
p.s. verið nú dugleg að kvitta:-)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 13:45:22 / veigan

Í útileguham!!!!!!!!!

Góðan daginn krúttubollur:þ:þ
Jæja þá er Veigan komin í svaka útilegugír og langar að fara að leggja í hann..........   Held samt að við förum ekki af stað fyrr en á morgun:!::!:  Alltaf Karlinn sem ræður ferðinni hehe8)8)
Erum að spá í að fara eitthvað austur á bóginn enda góð spá í nokkra daga, nota hana:lol::lol:
Annars bara lítið að frétta, allir hressir og kátir og njótum þess að vera saman í sumarfríi.
Verðum örugglega á ferðinni allavega fram að helgi & jafnvel lengur;);)
Þannig að ef ykkur leiðist getið þið kíkt í kaffi til okkar, verðum einhver staðar á suðurlandinu, er með gemsann hringið bara og ég hendi í pönnsur....
já eða eitthvað annað:):)
Knúsi knús
VEIGAN SÍKÁTA:þ:þ:þ


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 23:03:05 / veigan

Í bongó blíðu í Borgó:-)

Aðeins að tékka sig inn í blíðunni8)8)  Við mæðgur erum í þvílíkri blíðu & dekri í Borgó en Kalli minn er að koma frá Sverge seint í kvöld.  Við erum búnar að fara í skemmtilega lautarferð í Paradísarlaut og að Glanna í gær og svo fórum við í kvöldheimsókn til Nönnu & co upp í Fossatún í gærkvöldi:þ:þ
Í dag fórum við svo í sund og í Skalló að leika og sulla.  Afi & amma buðu svo í grill heima hjá Helenu syst í þvílíkri blíðu enda var auðvitað borðað úti:lol::lol:  Á morgun ætlum við svo að kíkja í bústaðinn hjá Evu vinkonu og hitta hana og krakkana:þ:þ  kíkja í pottinn og svona og fara svo í Húsafell og leika þar:d:d
Óvíst hvort við förum svo heim á morgun eða verðum eitthvað lengur hérna í dekrinu hehe....
Knúsi knús og hafið það nú gott í blíðunni8)8)8)
Veigan síkáta...........


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 09:43:33 / veigan

Grasekkja & Borgó um helgina!!!!!

Hæ hó hæ hó hæ hó:þ:þ:þ
Vildi bara láta ykkur vita að við erum á lífi:lol::lol:  Kalli er úti í Noregi að vinna en kemur heim á miðvikudaginn.  Við mæðgur ætlum að skella okkur í Borgó í dag og vera um helgina, Elín Helena tók reyndar forskot á sæluna og fór með mömmu & pabba í gær í Borgó8)8)8)
Ættarmót á Ströndum helgina 27-29 júní:lol::lol:
Brúðkaup hjá Birnu Dís & Ingó 5 júlí:þ:þ:þ
Útilega með Tantrasaumó 11-13 júlí:):):)
Sumarfrí 7 júlí- 5 ágúst8)8)8)
Svo þið sjáið að lífið er ljúft!!!
Allir hressir & kátir og hlakka bara til sumarfrísins, vonandi verður bara gott veður8)8)

Sendum risaknús til Einars Kára sem varð 40 á Portúgal í gær.  Til lukku með daginn töffarinn okkar og biðjum að heilsa Kolbrúnu, Fríðu Rún & Viktori Karli:þ:þ:þ

OVER AND OUT

VEIGAN


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 11:47:00 / veigan

Nýgift, södd & alsæl með lífið:-)

Jebb við mættum bæði og sögðum bæði já,, hjúkket
8)8)8)8)8)
Áttum yndislegan dag með vinum og vandamönnum, skemmtum okkur og hinum hehe ótrúlega vel:lol::lol::lol:  Fengum ótrúlega mikið af fallegum gjöfum ég meina það fólk er bara CRAZY þegar kemur að pökkum:þ:þ:þ

ÁSTARÞAKKIR FYRIR YNDISLEGAN DAG ALLIR SAMAN OG ALLAR ÞESSAR FLOTTU GJAFIR:d:d:d
Vonandi skemmtuð þið ykkur líka vel.....
KNÚSI KNÚS
FRÚ SÓLVEIG
p.s. var að setja inn myndir, undir brúðkaupið okkar hvað annað???


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 09:22:55 / veigan

2 dagar jibbí skibbí:-)

Allir hressir & kátir og mikil tilhlökkun fyrir stóra deginum:þ:þ:þ
Allt að detta inn, Elva mín komin á klakann og Lullan á leiðinni:lol::lol:
Hlakka til að hitta ykkur á laugardaginn og þið hin lofa að setja inn myndir við fyrsta tækifæri:haha::haha:

VEIGAN BRÁÐUM FRÚ
8)8)8)8)8)8)8)8)8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1143 dögum
Jólin koma enn á ný:-)
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti